Innlent

Minna plantað vegna þurrka

Skógarbændur hafa sums staðar frestað plöntun vegna undangenginna þurrka. Þá er hætt við að ungplöntur hafi skemmst í næturfrostum og þurrki, sérstaklega þær sem bíða gróðursetningar. Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi, segir Skógræktina þó ekki hafa lent í teljandi vandræðum vegna þurrka. "Við höfum plantað í land þar sem raki er nógur," sagði hann en á Suðurlandi er nokkuð um mýrar. Hreinn sagðist þó vita til þess að sums staðar hefðu skógarbændur þurft að breyta áætlunum sínum, sérstaklega þar sem ekki er votlent. Sólveig Pálsdóttir, skógarbóndi í Prestsbakkakoti í Skaftafellssýslu, segist ekkert vera byrjuð að planta þetta vorið og þá hafa þeir orðið að hætta sem eitthvað voru byrjaðir að planta í nágrenninu. Sólveig segist ekki muna eftir öðrum eins þurrkum þau tíu ár sem hún hefur stundað skógrækt. "Hins vegar eru vorin öft þurr hérna, en þó ekki undanfarin ár. Við erum samt bjartsýn. í dag var skúragangur í dag og spáir rigningu. Hér hefur heldur ekki skemmst mikið af plöntum, enda erum við það austarlega að við sluppum við mesta næturfrostið."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×