Áróður beinist gegn báðum kynjum 5. júní 2005 00:01
Forvarnaráróður vegna hjartasjúkdóma beinist jafnt að konum sem körlum á Íslandi, segir íslenskur hjartasérfræðingur. Þá sé enginn munur á kynjunum hvað varði greiningu og meðferð. Evrópurannsókn sýnir að lágt hlutfall kvenna er meðvitað um hættuna á hjartasjúkdómum og læknar þekki illa muninn á einkennum sjúkdómsins hjá körlum og konum. Tvær af hverjum þremur dönskum konum óttuðust að fá krabbamein en einungis tíu prósent óttuðust hjarta- og æðasjúkdóma sem er þó algengasta banamein kvenna. Í blaði Hjartaheilla, sem kemur út á morgun, segir að sá útbreiddi miskilningur að hjarta- og æðasjúkdómar séu karlasjúkdómar stafi af því að fræðsla og áróður um sjúkdóminn beinist fyrst og fremst að körlum. Í skýrslu Evrópsku hjartasamtakanna sem byggist á rannsókn níu sérfræðinga segir að læknar séu ekki nægilega vel þjálfaðir í að þekkja mismuninn á einkennum kvenna og karla þegar komi að hjartasjúkdómum. Ragnar Danielsen hjartasérfræðingur segir þetta ekki eiga við á Íslandi. Konur fái hér jafn góða greiningu og meðferð. Ragnar segir einkenni sem konur kvarti undan og kvartanamynstur þeirra annað en hjá körlum en flestir hjartalæknar geri sér grein fyrir því. Þegar verið sé að skoða stóra hópa innan Evrópusambandsins, sem sé orðið gríðarlega stórt og faraldsfræði breytist þar þar með tilkomu nýrra ríkja, geti komið fram sláandi tölur í könnunum þar. Kvenhormón verja konur að miklu leyti fyrir hjartasjúkdómum framan af ævinni en eftir að breytingaskeiðinu er náð eru hjartasjúkdómar stór áhættuþáttur. En það forskot sem konur hafa á karlana að þessu leyti vinna þær þó að miklu leyti upp með reykingum sem eyðileggja þessa vörn. Ragnar segir þörf á að beina auknum áróðri gegn reykingum að íslenskum konum en almennt séð sé reynt að fræða íslenskar konur um hjartasjúkdóma jafnt og karla. Hjartavernd hafi staðið sig mjög vel hvað það varðar. Ragnar telur enn fremur að áróður hér á landi beinist almennt að báðum kynjum. Íslenskir læknar hafi verið mjög meðvitaðir um það að nálgast konurnar öðruvísi en karlana því þær kvarti öðruvísi og fái önnur einkenni og þær hafi einnig verið rannsakaðar öðruvísi.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira