Innlent

Mistókst að sökkva háhyrningshræi

Tilraunir til að sökkva hræi af háhyrningi sem var á reki í Hafnarfjarðarhöfn í gær mistókust. Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar var kallaður til og var hræið dregið langt út á haf. Sprengingin gerði ekki annað en að skipta hræinu í tvennt og hélt það áfram að reka, nú í tveimur hlutum. Þá var ekki annað að gera en að draga hræbútana aftur að landi og binda þá niður. Þar stendur málið nú og verður ákvörðun um framhaldið væntanlega tekin síðar í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×