Innlent

Sjómenn séu undirstaða atvinnulífs

Sjómenn, ekki bankar og fjármálafyrirtæki, eru undirstaða íslensks atvinnulífs, sagði Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, í hugleiðingu í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í morgun. Haldið er upp á þennan dag alla helgina um land allt og má segja að í dag sé formlegi dagurinn, dagur ræðuhalda, viðurkenninga og messa. Hátíðin í Reykjavík verður sett klukkan tvö á Miðbakka með ræðu Guðmundar Hallvarðssonar, formanns Sjómannadagsráðs. Boðið verður upp á heilmikla dagskrá þar fyrir alla fjölskylduna eins og víðar um landið þar sem eins og áður segir margir tóku hins vegar forskot á sæluna í gær. Þá voru að sjálfssögðu hefðbundin sjómannadagsböll víða um land og fóru þau að mestu leyti vel fram. Eins og einn lögreglumaður orðaði það við fréttastofu Bylgjunnar þá eru sjómenn einfaldlega orðnir svo „dannaðir“. Vestmanneyingnum Árna Johnsen var hins vegar tíðrætt um það í hugleiðingu sinni í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í morgun að ekki mætti dæma sjómenn af hrjúfu yfirborði þeirra. Við ættum þeim margt að þakka en mættum vera mun duglegri í að sýna þeim virðingu. Árni sagði að íslenskir sjómenn hefðu fært Ísland inn í nútímann en ekki hagfræðingar, fjárfestingarfélög, bankar eða stjórnmálamenn. „Það var frumkvæði og sjálfstæði íslensku sjómannanna sem byggðu útgerð á Ísland frá upphafi útgerðar fyrir liðlega hundrað árum,“ sagði Árni. Þessa ætti að minnast hvern einasta dag þegar hugsað væri um þann árangur sem íslensk þjóð hefði náð. Sjómennskan er hættulegt starf eins og allir Íslendingar þekkja og hefur hafið tekið líf margra sjómanna. Árni minntist í ræðu sinni þeirra 500 sjómanna frá Vestmanneyjum sem farist hafa undanfarna öld, það er að meðaltali fimm ár hvert. Árni sagði landkrabba geta lært margt af sjómönnum. Ef þeir þyrftu að spúla dekkið í lok hvers dags líkt og sjómennirnir á bát sínum í lok hvers róðurs þá væri margt einfaldara og þá féllu menn síður í freistingar hversdagslífsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×