Óvissa annan daginn í röð 16. nóvember 2004 00:01
Starfsemi grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu var í uppnámi annan daginn í röð. Einungis var full kennsla í 7 skólum af 34. Aðeins helmingur kennara sá sér fært að mæta til vinnu, en þeir eru sagðir verða fyrir þrýstingi og áreiti af hálfu hinna, sem heima sátu. Víða á landsbyggðinni var skólastarf í eðlilegu horfi, en það var upp og ofan hvernig það gekk fyrir sig í skólum borgarinnar. Sumstaðar var engin kennsla, annarsstaðar var aðeins kennsla hjá yngri börnum. Víða var boðið upp á gæslu en þó var það ekki algilt. Í mörgum tilvikum gekk foreldrum illa að afla sér upplýsinga um það hvort börn þeirra ættu að mæta eða ekki, og sumir þurftu að sækja börnin aftur í skólana. Ástandið kom mörgum í opna skjöldu, enda höfðu fræðsluyfirvöld boðað að fullu skólastarfi yrði haldið uppi. Stefán Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, segir að óskað hafi verið eftir því í gær að haldið yrði uppi fullu skólastarfi í dag og margir hafi staðið sig afbragðsvel, bæði skólastjórar og kennarar. Það er stigsmunur á þeirri gæslu sem tugum þúsunda barna var boðið upp á í skólunum í dag og þeirri þjónustu sem þeim ber lögum samkvæmt að fá. Þrátt fyrir það er enn ómögulegt að segja til um hvert framhaldið verður. Helgi Árnason, skólastjóri í Rimaskóla, segist hafa reiknað með að fullt skólastarf yrði í dag og hann reikni með því sama fyrir morgundaginn, en um það sé einfaldlega afar erfitt að spá. Um helmingur grunnskólakennara í borginni mætti ekki til vinnu í dag. Almenna reglan er sú að fólk skili inn veikindavottorði ef það er veikt lengur en þrjá daga. Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa þó sent tilmæli til skólastjórnenda um að kalla eftir vottorði frá kennurum sem hafa verið veikir í tvo daga. Formaður fræðsluráðs segir enga ákvörðun hafa verið tekna um slíkt vegna fjarvista kennara í Reykjavík. Hann hvetur þá til að mæta til starfa og biður um þeir láti af þrýstingi á þá kennara sem kjósa að verða við því. Hann segist harma það hve mikill þrýstingur sé settur á þá kennara sem vilji vinna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Sjá meira