Innlent

Fasteign vill fjármagna göngin

Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. hefur áhuga á að fjármagna jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja, segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður og oddviti Vestmannaeyjalistans, en hann var í lok síðustu viku kosinn í stjórn félagsins. Áætlaður kostnaður vegna ganganna nemur um 27 milljörðum króna. Fasteign hf. er í eigu nokkurra sveitarfélaga auk fjármálafyrirtækja og var stofnað um rekstur húseigna bæjarfélaganna. Lúðvík segir þrennt þurfa að koma til svo af fjármögnun geti orðið. Niðurstaða rannsókna á jarðlögum þarf að leiða í ljós að göngin séu möguleg. "Fyrstu yfirborðsrannsóknir sýna að það lag hefur ekki hreyfst í 11 þúsund ár og það er nú ágætis afskriftartími á göngum," segir Lúðvík, en niðurstaða rannsóknar á að liggja fyrir næsta haust. Hin skilyrðin eru að ríkið láti árlega af hendi rakna sömu eða ívið hærri fjárhæð og greidd er vegna reksturs Herjólfs í einhver ár og að virðisaukakattur verði felldur niður líkt og gert var við gerð Hvalfjarðarganganna. "Með þessum hætti yrði ekki raskað framkvæmdum hjá ríkinu," segir Lúðvík og bendir á að á 30 til 40 árum þyrfti ríkið hvort eð er að endurnýja skipakost til Eyja eða jafnvel byggja höfn í Bakkafjöru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×