Framhaldið óljóst 15. nóvember 2004 00:01
Enn er á huldu hvort, hvar og hvenær skólastarf hefst á nýjan leik í grunnskólum landsins. Kennarar segjast munu taka ákvörðun um slíkt einn dag í senn og hver fyrir sig. Fræðsluyfirvöld binda þó vonir við að kennsla hefjist á morgun. Á aukafundi fræðsluráðs sem haldinn var í dag að ósk sjálfstæðismanna var samþykkt, að beina þeim tilmælum til skólastjórnenda í Reykjavík að þeir leiti leiða til að tryggja að grunnskólar borgarinnar taki á móti nemendum frá og með morgundeginum og veiti lögbundna þjónustu. Slíkt hlýtur óhjákvæmilega að velta á því hvort kennarar treysta sér til vinnu og það er enn á huldu. Skólastjórar á landinu öllu munu reyna að koma upplýsingum til foreldra í fyrramálið, þegar ástandið skýrist. Formaður Fræðsluráðs Reykjavíkur, Stefán Jón Hafstein, bendir á að skólaliðar séu að störfum, einhverjir kennarar muni mæta til vinnu líkt og í dag, og dæmi séu um að foreldrar hafi boðið fram krafta sína til að skólahald verði. Hann segist þó treysta því að kennarar mæti í vinnu á morgun og það ræður hann af þeim viðbrögðum sem fræðsluyfirvöld hafi fengið frá kennurum í dag. Umboðsmaður barna mælist einnig til þess við grunnskólakennara að þeir sýni börnum þessa lands virðingu og mæti þegar í stað til vinnu sinnar í grunnskólum, eins og lög bjóða. Í tilkynningu er bent á að börn eru skólaskyld og eigi stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu. Þá er tekið fram að virðingarleysi fyrir þessum réttindum sé engum til sóma. Ef kennarar sjá ástæðu til að kvarta yfir skilningsleysi hjá fræðsluráði og umboðsmanni Alþingis, geta þeir ekki kvartað yfir skilningsleysi frá hálfu formanns síns, Finnboga Sigurðssonar, sem segist skilja það vel að grunnskólakennarar brotni niður vegna vonbrigða. Hann segist ekki telja að félagsmenn sínir séu að gefa þau skilaboð að það sé í lagi að brjóta lög, enda séu börnin ekki að hugsa um lög, heldur bara að fá að mæta í skólann. Finnbogi segist ekki geta spáð fyrir um mætingu kennara á morgun, en hann geti ekki varið það að menn brjóti lög.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira