Ferðin var óþörf 15. nóvember 2004 00:01
Yfirmannaskipti verða á flugvellinum í Kabúl á miðvikudag. Hallgrímur Sigurðsson hverfur þá frá störfum og kemur til Íslands. Hann lauk teppakaupum sínum á flugvellinum á meðan undirmenn hans lágu í sárum á sjúkrahúsi. Unnustur og eiginkonur friðargæsluliðanna sem lentu í lífsháska á Kjúklingastræti í Kabúl í Afghanistan sendu frá sér yfirlýsingu í gær. Það var mat þeirra og manna þeirra að umræðan um þá og þá sér í lagi boli sem þeir íklæddust við heimkomuna væri á villigötum. „Shit happens" væru ummæli sem Hallgrímur Sigurðsson viðhafði þegar hann lauk máli sínu eftir að hafa útskýrt leiðangurinn til teppakaupmannsins. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafði friðargæsluliðunum ekki verið bannað að tjá sig en þeir kusu að upplýsa ekki um tilgang þess að íklæðast bolunum við heimkomuna. Fréttastofa stöðvar Tvö spurði engu að síður mjög ákveðið í Leifstöð hvort ekki fælist í bolunum ádeila á yfirmenn þeirra. Af gefnu tilefni skal frá því greint að Bein þýðing „shit happens," er skítur skeður, en meiningin er meira í ætt við að þetta hafi verið eins og hvert annað hundsbit. Garðar Forberg tekur við stjórnun flugvallarins í Kabúl á miðvikudag en hann stjórnaði áður flugvellinum í Pristina þegar íslendingar sáu um rekstur flugvallarins þar. Ekki er áformað að Hallgrímur Sigurðsson taki að sér fleiri störf innan utanríkisþjónustunnar á næstunni. Þær upplýsingar fengust í utanríkisráðuneytinu að allar skýrslur og greinargerðir um atvikið í Kabúl hefðu verið skrifaðar. Rannsókn málsins væri að fullu lokið. Það hefur þó ekki komið fram áður að á meðan Stefán, Steinar Örn og Sverrir Haukur lágu á sjúkrahúsi eftir árásina fékk Hallgrímur teppakaupmanninn úr Kjúklingastræti til þess að koma með sýnishorn af teppum á flugvöllinn og kláraði þar með kaup sín. Þetta er staðreynd sem sýnir svo ekki verður um villst að ferðin í Kjúklingastræti með hörmulegum afleiðingum sínum var óþörf.
Fréttir Innlent Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Tveggja turna tal í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira