Kirkjan styrkir stöðu sína 12. október 2004 00:01
Kirkjan virðist standa ágætlega að vígi samkvæmt nýlegri Gallupkönnun. Meirihluti landsmanna telur stöðu hennar sterka enda þótt stór hluti þjóðarinnar segi að greina eigi á milli ríkis og kirkju. Fleiri telja sig eiga mikla samleið með kirkjunni en í eldri könnunum en þátttaka hennar í þjóðfélagsumræðum er hins vegar umdeild. Biskupsstofa kynnti þessar niðurstöður í gær en þær eru úr könnun Gallup um trúarlíf Íslendinga sem gerð var í febrúar og mars síðastliðnum. Hringt var í 1500 manns af handahófi og var svarhlutfall 60,4 prósent. 56% landsmanna telur að staða Þjóðkirkjunnar almennt sé sterk en þriðjungur þjóðarinnar er á öndverðri skoðun. Þjóðkirkjufólk hefur almennt meiri trú á stöðu kirkjunnar en samt segja 45 prósent þeirra sem aldrei sækja guðsþjónustur að kirkjan standi styrkum fótum. Þegar þjóðkirkjufólk var spurt hversu mikla samleið það telur sig eiga með kirkjunni segist 71 prósent eiga mikla eða nokkra samleið á meðan 29 prósent sögðust eiga litla eða enga samleið með stofnuninni. Séu þessar niðurstöður bornar saman við könnun sem gerð var á árunum 1986-1987 kemur í ljós að mun fleiri telja sig eiga mikla samleið með kirkjunni á meðan fjöldi óánægðra stendur nánast í stað. Helmingur úrtaksins var spurður um afstöðu sína til aðgreiningar ríkis og kirkju og sögðust 57 prósent kjósa aðgreiningu. Stærri hluti kjósenda Samfylkingarinnar virðist fylgjandi aðgreiningu en hjá hinum flokkunum. Fjórðungur aðspurða telur að kirkjan og ríkið eigi einfaldlega ekki samleið og fimmtungur lagði áherslu á að öll trúfélög ættu að vera jafn rétthá. Afgangur úrtaksins var spurður hvort hann væri hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju og sögðust 46% vera þeirrar skoðunar. Það er lægra hlutfall en yfirleitt er þessarar skoðunar í þjóðarpúlsi Gallup. Deildar meiningar eru um þátttöku kirkjunnar í þjóðfélagsumræðum. Tæpur helmingur landsmanna er fylgjandi að kirkjan taki meiri beinan þátt í umræðunni en fjörtíu prósent eru því andvíg. Andstaða sjálfstæðismanna er eindregnust í þessum efnum en minnst á meðal framsóknarmanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira