Fleygði líkinu og fór í búðir 3. ágúst 2004 00:01
Sænskum póstpoka með gínu, fötum, grjóti og kúbeini var varpað í fjöruna við Presthúsatanga við Hofsvík þar sem Hákon Eydal segist hafa komið líki Sri Rahmawati fyrir. Hákon banaði Sri með kúbeini og segist hafa komið morðvopninu ásamt líkinu fyrir í sænskum póstpoka sem hann hnýtti fyrir með taubuxum. Pokinn sem settur var í fjöruna í gær er um 75 kíló af þyngd og var reynt að líkja eins nákvæmlega eftir innihaldi pokans og hægt var samkvæmt frásögn Hákonar. Pokinn lenti í fjörunni, nokkrum metrum frá flæðarmálinu en það var nærri því háfjara eins og var þegar Hákon losaði sig við líkið. Þá var veður einnig mjög svipað og það var sunnudaginn örlagaríka fyrir mánuði síðan. Seinni partinn í gær var farið að flæða að og pokinn kominn í kaf. Björgunarbáturinn Ásgrímur S. Björnsson mun fylgjast með pokanum og rekaldinu og kortleggja hreyfingu þeirra í sjónum. Landsbjörg sá um að útbúa pokann og eru allir hlutir í honum merktir Slysavarnarfélaginu Landsbjörg svo ekki verði villst á þeim og því sem var í pokanum sem líkt var eftir. Ef einhverjir verða varir við merktu hlutina eru þeir beðnir um að hafa samband við lögreglu eða Landsbjörg. Þá var einnig sett út rekald, trjádrumbur með áfastri bauju, til að sjá hvert hlutir úr pokanum gætu hugsanlega rekið, ef pokinn hefur opnast eða rifnað. Ef pokinn hefur opnast gerir það allar getgátur um hvar líkið gæti verið að finna mun erfiðari.
Fréttir Innlent Mest lesið Ísland leggur til fólk á rússnesku landamærin Innlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent „Kannski var þetta prakkarastrik“ Innlent Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Innlent 109 látnir og yfir 160 saknað Erlent „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Innlent Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Innlent Fleiri fréttir Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk á rússnesku landamærin Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Sjá meira