Innlent

Fimm ára í grunnskóla

Fimm ára börnum á Súðavík hefur verið boðin frí þjónusta í leikskólum bæjarins hluta úr degi í níu ár. Þau hljóta kennslu í ellefu til fjórtán klukkustundir á viku með börnum í fyrsta bekk grunnskólans. Dagbjört Hjaltadóttir, umsjónamaður samkennslu leik- og grunnskóla Súðavíkur, segir þetta ekki hafa komið til af góðu."Leikskólinn okkar fór í snjóflóðinu og við misstum mörg börn úr grunnskólanum. Við þrengdum að okkur og létum leikskólann hafa eina kennslustofuna. Eins og góðum grasrótarskóla sæmir þá fórum við strax að hugsa hvernig við gætum nýtt okkur þessa nýju aðstöðu til þess að gera góða hluti betri." Dagbjört segir að þar sem skólinn sé fámennur, um fimm börn í árgangi, sé bekkjum kennt saman. Leikskólakennarinn komi með börnunum í skólann og hjálpi þá einnig eldri börnunum. "Öll börn í Súðavíkurskóla eru með einstaklingsnámskrá og vinna á sínum hraða." Árangurinn er góður. "Við höfum tekið saman hvernig þau standa sig í stærðfræði og lestri. Okkur sýnist þau hafa ótrúlegt forskot, þau verða fyrr læs og þau verða læsari á stærðfræði. Ég er hætt að fara eftir aðalnámskrá því við erum farin að seilast aðeins lengra," segir Dagbjört.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×