Innlent

2.500 athugasemdir vegna netléna

Samkeppnisstofnun sendi um 2500 eigendum að íslenskum netlénum athugasemdir þess efnis að vefsíður þeirra uppfylltu ekki upplýsingaskyldu þeirra sem veita rafræna þjónustu á netinu. Alls voru um tíu þúsund vefsíður skoðaðar í könnun Samkeppnisstofnunar. Að sögn Önnu Birnu Halldórsdóttur hjá Samkeppnisstofnun eru það ýmiskonar upplýsingar sem vantar á heimasíðurnar, til dæmis nafn, heimilisfang, kennitölu og svo framvegis. Hún segir að þeim sem var send athugasemd í stöðluðu bréfi hafi verið vísað á upplýsingabækling þar sem fram kemur hvaða upplýsingar þurfa að vera á heimasíðum þeirra svo þeir geti gert úrbætur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×