Innlent

Lögheimili kjósanda breytt

Þóru Magnúsdóttur, 81 árs gömlum Reykvíkingi, brá í brún þegar hún ætlaði að kjósa á laugardaginn. Þóra taldi sig eiga að greiða atkvæði í ráðhúsi Reykjavíku samkvæmt lögheimili, en þar var henni hins vegar tilkynnt að lögheimili hennar hefði verið breytt og hún ætti að kjósa í Laugardalshöll. Þóra segir að breytingin á lögheimili hennar hafi verið gerð án sinnar vitundar eða ættingja. Í apríl flutti Þóra af hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut yfir í Fellsmúla, þar sem hún dvelur þar til í júlí þegar hún flytur í eigið húsnæði. Hún segist hafa ætlað að geyma að flytja lögheimilið þar til hún flytti þangað. Lögum samkvæmt má hún hins vegar ekki hafa lögheimili á Grund eftir að hún flutti og tilkynntu starfsmenn þar Þjóðskrá að hún væri farin þaðan. Svo virðist sem Þjóðskrá hafi skráð nýjan dvalarstað Þóru sem lögheimili hennar. Í samtali við starfsmann Þjóðskrár kom fram að ekki væri hægt að fjalla um mál einstaklinga vegna trúnaðarskyldu og ekki var gefið upp hvort sá möguleiki væri fyrir hendi að breyta lögheimili einstaklinga án þess að þeir viti af því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×