Bjargar mörgum frá innlögn 24. desember 2004 00:01
Fjárframlag til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar fyrir næsta ár er loks í höfn. Á ýmsu hefur gengið með verkefnið síðustu misserin. Síðla sumars leit út fyrir að á annað hundrað manns myndu ekki geta hafið nám í húsnæði Geðhjálpar í haust eins og þeir höfðu sótt um, þar sem engin vissa fékkst um fjármuni til kennslunnar. Öllu starfsfólki verkefnisins hafði verið sagt upp í vor og fólkið sem hafði sótt um nám í hinum ýmsu greinum beið í óvissu. Þegar allt virtist komið í óefni bárust þær fréttir frá fjárveitingavaldinu að námið á haustönn yrði tryggt. Enn syrti í álinn þegar leið nær jólum því enn vantaði fjármuni til næsta árs. Vonin þvarr eftir því sem dagarnir liðu og menn kvöddust í fullkominni óvissu um framhaldið við haustannarlok. "En svo fengum við fregnir um fjárframlag og að reksturinn yrði tryggður á næsta ári í samræmi við þarfir," sagði Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar sem sagði um 100 manns hafa sótt um nám á vorönn. "Það er engin spurning að þetta nám hreinlega bjargar mörgum frá innlögn á sjúkarhús," sagði hann enn fremur. "Það eru allir sammála um mikilvægi þessa náms og nú vonum við, öll sem eitt, að baráttunni fyrir tilveru þess sé endanlega lokið og að það verði tryggt í sessi til framtíðar. Það græða allir á því."
Innlent Menning Mest lesið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Lífið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Lífið Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fleiri fréttir Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Sjá meira