Enn deilt um uppgjör Opinberunar 24. desember 2004 00:01
Ágreiningur er uppi um hlutverk og skyldur Kvikmyndamiðstöðvar vegna uppgjörs á kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun Hannesar. Félag kvikmyndagerðarmanna beindi því fyrir um það bil ári til þáverandi Kvikmyndastofnunar, sem síðar varð Kvikmyndamiðstöð, að kallað yrði eftir greinargerð um notkun opinberra fjármuna í myndina. Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar segir það ekki verða gert. "Í þessu tilviki voru grunsemdir uppi um að ekki hefði verið vel með fé farið," sagði formaður félagsins, Björn Br. Björnsson. "Í ljósi þeirra ásakana sem komu frá einstaklingum ályktuðum við og hvöttum Kvikmyndastofnun til að fara yfir bókhaldið á þessu máli til að hreinsa það upp, þannig að menn lægju ekki undir grun um að hafa fengið miklu meira fé til einhvers verks en það kostaði." Opinberun Hannesar vakti mikla athygli á sínum tíma þegar myndinni var neitað um styrk hjá Kvikmyndasjóði. Þorfinnur Ómarsson, forstöðumaður þáverandi Kvikmyndastofnunar, setti sig upp á móti styrknum, sætti rannsókn Ríkisendurskoðunar og varð skömmu síðar að hætta þegar menntamálaráðherra vísaði honum tímabundið úr starfi. Lögfræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að brottvikningin hefði verið ólögmæt og Þorfinnur fékk starfið tímabundið aftur eða þar til embætti hans var lagt niður. Á seinustu dögum sínum í starfi ákvað hann að veita mynd Hrafns styrk upp á 22 milljónir króna. Menntamálaráðherra óskaði eftir því að Ríkisendurskoðun færi yfir málið. Niðurstaðan varð sú að Þorfinni hefði verið óheimilt að styrkja myndina án leyfis ráðherra. Sjónvarpið keypti síðan sýningarrétt á henni fyrir tíu milljónir. "Þessi úthlutun kom til áður en Kvikmyndamiðstöð varð til úr Kvikmyndastofnun," sagði Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður stöðvarinnar. "Þetta var algjörlega á milli kerfa og fram hjá þeim. Hrafn sagði á opinberum vettvangi, að hann myndi skila inn uppgjöri, en meira hefur ekki gerst, svo ég viti." "Við getum ekki gert neitt í þessu," sagði Laufey. "Eins og ég les samninginn sem Þorfinnur gerði við Hrafn, þá getur hann komist hjá því að skila uppgjöri til okkar." "Kvikmyndamiðstöð getur ekki þvegið hendur sínar af þessu," sagði Björn. "Ég veit ekki betur heldur en að hún hafi tekið við að fylgja eftir öllum málum Kvikmyndastofnunar. Ég geri ráð fyrir að stjórn okkar félags muni ræða þetta mál."
Innlent Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira