Innlent

Bráðaþjónusta verður lögð af

Sjö starfsmönnum verður sagt upp á Vogi og ráðgjafavakt og bráðaþjónusta sem veitt hefur verið á göngudeild meðferðarstofnunarinnar verður lögð af, eftir því sem Þórarinn Tyrfingsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs SÁÁ, segir. Einnig verður dregið úr viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla og nýir sjúklingar munu ekki njóta góðs af þessari meðferð þó að hún hafi borið góðan árangur. Innlögnum verður fækkað um 10 prósent, sjúklingar yngri en 16 ára verða ekki innritaðir og þjónusta við vímuefnasjúklinga sem einnig eru haldnir geðsjúkdómum mun minnka. Niðurskurðurinn kemur til vegna mikils halla á rekstri Vogs. Þrátt fyrir þessar sparnaðaraðgerðir verður Vogur rekinn áfram með 70 milljóna króna halla, sem er minnkun um 45 milljónir króna. Árlegur rekstrarkostnaður við Vog er 380 milljónir króna. "Það eru alltaf breytingar í heilbrigðisþjónustunni til og frá. Við á Vogi höfum hafið nýja meðferð fyrir sprautufíkla sem er ný bráðaþjónusta með lyfi sem er mjög dýrt. Kerfið gerir einfaldlega ekki ráð fyrir þessari bráðaþjónustu og er mjög stíft og erfitt í þeim málum. Alþingismenn virðast ekki skilja að bráðamóttöku í Reykjavík vantar peninga og það þarf að leysa núna. Það hlýtur að vera hægt að spara annars staðar," segir Þórarinn vegna þess mikla niðurskurðar sem er fyrirhugaður á sjúkrahúsinu Vogi. Sjúklingum þar hefur fjölgað og þjónusta annarra sjúkrastofnana við áfengis- og vímuefnaneytendur hefur minnkað verulega. Ekki náðist í Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, þar sem hann er staddur í Mexíkó. Vænst er að hann muni veita svör í þessu máli þegar hann kemur heim næstkomandi fimmtudag. Jón stýrði fundi heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum sem haldinn var í október. Þar náðist sameiginleg niðurstaða um að það þyrfti að hækka skatta á áfengi í forvarnaskyni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×