Innlent

Matvælarannsóknir

Háskólinn á Akureyri og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins munu halda sameiginlegan fund um matvælarannsóknir á Norðurlandi þriðjudaginn 23. nóvember. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra opnar fundinn og síðan taka rektor háskólans og forstjóri ransóknarstofnuninnar til máls. Að þeim ávörpum loknum kynna ýmsir sérfræðingar beggja stofnana rannsóknarverkefni sem stofnanirnar vinna að. Eyjólfur Reynisson, stafsmaður á rannsóknarsviði Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, mun kynna verkefnið Ný tækni við greiningar á örverum í matvælavinnslu. "Ég mun rétt kynna fyrirhugaðar rannsóknir og stefnuna í þeim málum með áherslu á hraðvirkar aðferðir. Þar er notast við sameindalíffræði, sem er mjög ólík hefðbundnum aðferðum þar sem örverur eru ræktaðar á skálum. Með sameindalíffræði liggja niðurstöður fyrir mjög fljótt og örugglega. Minni líkur eru á að menguð matvæli komist í umferð," segir Eyjólfur. Fundurinn verður haldinn í stofu 316 í Borgum, rannsókna- og nýsköpunarsetri Háskólans á Akureyri á Sólborg, og mun standa frá klukkan 13 til 17. Aðgangur er ókeypis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×