Innlent

Ótrúleg skammsýni stjórnvalda

Það er ótrúleg skammsýni að byggja hagvöxt á því að menga meira, segir náttúrufræðingurinn Hjörleifur Guttormsson. Forsætisráðherra sagði í gær að fyrirhugaðar skattalækkanir byggðust að hluta á Kyoto-bókuninni sem gerði Íslendingum kleift að losa meiri mengun út í andrúmsloftið. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær að fyrirhugaðar skattalækkanir byggðu meðal annars á Kyoto-bókuninni. Þar er sérákvæði um Íslendinga um að fá að losa 1,6 milljónir tonna af gróðurhúsalofttegundum. Þetta er forsendan fyrir stóriðju, sagði forsætisráðherrann, sem hefði aftur leitt til betri efnahags og þar með tækifæra til skattalækkana.  Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur og fyrrverandi alþingismaður, segir það vissulega rétt að þessi heimild Íslendinga til að fá að menga meira hafi leitt til þess að það var mun ódýrara fyrir stórverksmiðjur að byggja upp á Íslandi. Hann segir það vafalaust hafa haft áhrif á Alcoa sem kom svo skjótlega inn í dæmið á Reyðarfirði. En þetta er ótrúleg skammsýni, segir Hjörleifur. Í raun sé verið að byggja hagvöxt á mengunarkvóta, sem sé þegar næstum uppurinn. Nýtt hafi verið um 1100 þúsund tonn af því og þá eru eftir rösklega 400 þúsund tonn. Það svarar til eins álvers með ársframleiðslu upp á 300 þúsund tonn. Spurningin er svo hvað verður í framhaldinu. Hjörleifur segir skammsýnina þarna ráða ríkjum eins og á flestum sviðum í siglingu núverandi stjórnvalda, til þess eins að halda völdum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×