Innlent

Krónan mjög sterk

Íslenska krónan stendur um þessar mundir afar sterk gagnvart erlendri mynt, sér í lagi dollara. Þetta hefur margvísleg áhrif á íslenskt efnahagslíf, innfluttar vörur ættu að lækka í verði en á sama tíma má búast við að arðsemi fyrirtækja í útflutningi minnki. Gengi krónunnar hefur ekki verið hærra í níu mánuði meðal annars vegna þess að erlend lántaka hefur aukist verulega. Því til grundvallar liggur mikill munur á innlendum og erlendum vöxtum. Bandaríkjadalur stendur nú í rúmum 66 krónum og hefur ekki verið lægri gagnvart krónunni síðan seint á árinu 1997 samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar bankans segir þessa þróun þýða að verð á innfluttum vörum lækkar í verði en einnig að þeir sem standa í útflutningi fá minna fyrir sinn snúð. Hann segir að styrking krónunnar dragi úr hagvexti almennt, en einkaneysla aukist og til að mynda aukist innflutningur á bílum og öðrum influttum vörum mikið. Viðskiptahalli eykst stöðugt samfara þessari þróun, fólk kaupir meira af innfluttum vörum vegna þess á hve hagstæðu verði þær fást en verðmæti útfluttra vara minnkar. Ingólfur segir stöðuna endurspegla sterkt efnahagslíf á Íslandi, og trú erlendra fjárfesta á krónunni en þeir hafi sýnt það með fjárfestingum í íslenskum skuldabréfum og stóriðju. Hann á von á að þessi þróun haldi áfram í það minnsta eitthvað fram eftir næsta ári, krónan haldi áfram að vera sterk og að dollarinn eigi jafnvel eftir að lækka talsvert meira frá því sem nú er. Hann segir mun ódýrara að ferðast til Bandaríkjanna og versla þar nú heldur en var fyrir nokkrum árum. Jafnvel megi búast við því að Íslendingar nýti sér þetta á næstunni. Hann segir að erlend lán lækki við styrkingu krónunnar, sem sé gott fyrir skuldsetta þjóða eins og Ísland.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×