Botnvörpubanni afstýrt hjá SÞ 10. nóvember 2004 00:01
Tillaga um allsherjarbann við veiðum með botnvörpu á úthafinu náði ekki fram að ganga hjá Sameinuðu þjóðunum en Kosta Ríka hafði lagt fram tillögu um slíkt. Samningaviðræðum um hafréttar- og fiskveiðimál á vegum samtakanna er lokið. Um mikið hagsmunamál er að ræða fyrir Íslendinga þar sem botnvarpa er mikilvægasta veiðarfæri íslenska flotans. Í hana voru veidd rúm fjörutíu prósent alls aflaverðmætis sem dregið var á land á síðasta fiskveiðiári. Hópur sjávarlíffræðinga og umhverfisverndarsamtaka hafði krafist þess að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna bannaði veiðarnar algjörlega vegna áhrifa þeirra á vistkerfi sjávar. Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu, tók þátt fyrir Íslands hönd í viðræðum Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segir að Noregur hafi lagt fram tillögu sem hneig í sömu átt og tillaga Kosta Ríka. Hins vegar hafi aðeins nokkur ríki lýst yfir stuðningi við tillögurnar. Ísland, ásamt mörgum öðrum ríkjum, lagðist hins vegar ákveðið gegn þeim. "Það er á valdi viðkomandi ríkja og svæðisbundinna fiskveiðistofnana að meta hugsanlega þörf fyrir bann við notkun botnvörpu á einstökum hafsvæðum," segir Tómas. Tillagan um allsherjarbann náði þess vegna ekki fram að ganga. Tómas segir að á undanförnum árum hafi orðið vart við vaxandi viðleitni ýmissa ríkja á vettvangi Sameinuðu þjóðanna til að koma á hnattrænni stjórn fiskveiða. Ísland hafi lagst eindregið gegn öllum slíkum tilraunum og vísað í því sambandi til hafréttarsamningsins og úthafsveiðisamningsins. Ísland hafi á þessum vettvangi jafnframt beitt sér gegn hvers konar alhæfingum um stöðu fiskistofna í heiminum og um skaðsemi einstakra tegunda veiðarfæra.
Fréttir Innlent Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Erlent Fleiri fréttir Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Sjá meira