Innlent

Fá úrræði eftir

Fá úrræði eru nú til lausnar kennaradeilunni. Tromp ríkissáttasemjara er að leggja fram miðlunartillögu fram hjá samninganefndunum, sem færi beint í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum. Miðlunartillaga er þó ekki lögð fram nema með samráði við samninganefndirnar. Þetta er í raun eina úrræðið sem ríkissáttasemjari á eftir. Miðlunartillaga er heilmikið fyrirtæki og um hana gilda mjög sérstakar rlegur. Þannig skoðast hún felld ef meira en fjórðungur atkvæða eru greidd gegn henni. Upplýsingar fréttastofu benda þó ekki til þess að til standi að leggja fram slíka tillögu á fundinum sem boðað hefur verið til hjá ríkissáttasemjara á morgun. Nú hefur verið útilokað í bili að vísa deilunni í gerðardóm og stjórnvöld hafna lagasetningu. Ólíklegt verður að teljast að til kasta gerðardóms komi eða lagasetningar, fyrr en deilan er komin í slíkan hnút að búið sé að hafna samningi sem gerður hafi verið. Eða þá að miðlunartillögu verði hafnað. Síðast var lögð fram miðlunartillaga í deilu um kjör háseta á Herjólfi í fyrra en hún skoðast sem lokaúrræði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×