Innlent

Kviknaði í út frá rafmagni?

Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá rafmagni þegar iðnaðarhúsnæði brann til grunna á Blönduósi í nótt. Tugmilljóna tjón varð í brunanum. Bæjarstjórinn óttast um afleiðingarnar fyrir atvinnumál á staðnum. Húsið er fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut á Blönduósi, rétt við þjóðveginn norður og gjarnan nefnt Votmúli. Eldsins varð vart rétt uppúr klukkan fjögur í nótt og breiddist skjótt um meirihluta hússins, meðal annars í timburlager Húnakaups og bílaverkstæði, og víða sprungu gaskútar þannig að slökkviliðsmönnum stóð hætta af, en engan sakaði. Slökkviliðsmönnum tókst með harðfylgi að koma í veg fyrir að eldur teygði sig framhjá eldvarnarvegg í norðurenda hússins, en handan hans og í nýrri viðbyggingu er nýja ullarþvottastöðin, sem tókst að verja. Um tíma var óttast að sprenging yrði á gaskútalager í húsinu, en slökkviliðsmönnum tókst að kæla kútana í tæka tíð. Hluti þaks hússins er hruninn og sömuleiðis útveggir. Eldsupptök eru ókunn, en eldurinn virðist hafa kviknað í suðurenda hússins, þar sem fyrirtækið Vilko hefur meðal annars starfssemi sína. Það sem enn stendur uppi af húsinu verður rifið, en framtíð þeirrar starfsemi sem var í húsinu er enn óráðin. Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri á Blönduósi, segist óttast afleiðingarnar fyrir atvinnumál íbúanna. Hún segir 15-20 manns stórt hlutfall í þúsund manna bæjarfélagi og bæjarstjórnin muni hafa samband við þá sem hlut eiga að máli og sjá hvað hægt verði að gera fyrir þá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×