Kviknaði í út frá rafmagni? 28. september 2004 00:01
Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá rafmagni þegar iðnaðarhúsnæði brann til grunna á Blönduósi í nótt. Tugmilljóna tjón varð í brunanum. Bæjarstjórinn óttast um afleiðingarnar fyrir atvinnumál á staðnum. Húsið er fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut á Blönduósi, rétt við þjóðveginn norður og gjarnan nefnt Votmúli. Eldsins varð vart rétt uppúr klukkan fjögur í nótt og breiddist skjótt um meirihluta hússins, meðal annars í timburlager Húnakaups og bílaverkstæði, og víða sprungu gaskútar þannig að slökkviliðsmönnum stóð hætta af, en engan sakaði. Slökkviliðsmönnum tókst með harðfylgi að koma í veg fyrir að eldur teygði sig framhjá eldvarnarvegg í norðurenda hússins, en handan hans og í nýrri viðbyggingu er nýja ullarþvottastöðin, sem tókst að verja. Um tíma var óttast að sprenging yrði á gaskútalager í húsinu, en slökkviliðsmönnum tókst að kæla kútana í tæka tíð. Hluti þaks hússins er hruninn og sömuleiðis útveggir. Eldsupptök eru ókunn, en eldurinn virðist hafa kviknað í suðurenda hússins, þar sem fyrirtækið Vilko hefur meðal annars starfssemi sína. Það sem enn stendur uppi af húsinu verður rifið, en framtíð þeirrar starfsemi sem var í húsinu er enn óráðin. Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri á Blönduósi, segist óttast afleiðingarnar fyrir atvinnumál íbúanna. Hún segir 15-20 manns stórt hlutfall í þúsund manna bæjarfélagi og bæjarstjórnin muni hafa samband við þá sem hlut eiga að máli og sjá hvað hægt verði að gera fyrir þá.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira