Ekki vitað um eldsupptökin 28. september 2004 00:01
Enn er allt á huldu um eldsuptök í stórhýsinu sem eyðilagðist í eldsvoða á Blönduósi í nótt. Það sem enn stendur uppi af rústunum, verður rifið niður. Tugmilljóna tjón varð í brunanum þegar húsið, sem er stærsta húsið á staðnum brann að stórum hluta. Slökkviliðinu á Blönduósi, frá Skagaströnd og Hvammstanga, sem kölluð voru til aðstoðar tókst um klukkan sjö að ráða niðurlögum eldsins, en áfram er verið að slökkva í glæðum og nú rétt undir hádegi rauk enn víða. Húsið er fjögur þúsund fermetra iðnaðarhúsi við Efstubraut á Blönduósi, rétt við þjóðveginn norður og gjarnan nefnt Votmúli. Eldsins varð vart rétt uppúr klukkan fjögur í nótt og breiddist hann skjótt um meirihluta hússins, meðal annars í timburlager Húnakaups og bílaverkstæði, og víða sprungu gaskútar þannig að slökkviliðsmönnum stóð hætta af, en engan sakaði. Slökkviliðsmönnum tókst með harðfylgi að koma í veg fyrir að eldur teygði sig framhjá eldvarnarvegg í norðurenda hússins, en handan hans og í nýrri viðbyggingu er nýja ullarþvottastöðin, sem tókst að verja. Svo vel vildi til að hæglætis veður var á svæðinu þannig að neistaflug ógnaði ekki byggðinni og slökkviliðsmenn höfðu nægilegt vatn. Um tíma var óttast að sprenging yrði á gaskútalager í húsinu, en slökkviliðsmönnum tókst að kæla kútana í tæka tíð. Hluti þaks hússins er hruninn og sömuleiðis útveggir. Eldsupptök eru ókunn, en eldurinn virðist hafa kviknað í suðurenda hússins, þar sem fyrirtækið Vilko hefur meðal annars starfssemi sína. Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri segir aðkomuna ljóta, en það sé mikill mildi að þarna hafi verið stór og mikill eldveggur, sem hafi varnað því að eldurinn teygði sig í frekari starfsemi í húsinu. Hún segist hafa áhyggjur af þeim 15-20 mönnum sem hafi unnið í húsinu, enda sé það stórt hlutfall í 1000 manna bæjarfélagi. Þetta sé bara nýskeð, en bæjarstjórnin muni setjast niður og ræða við þá sem hlut eiga að máli og sjá hvort hægt verði að koma til móts við þá.
Fréttir Innlent Mest lesið Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Fleiri fréttir Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Sjá meira