Rodman, Drexler og Jordan í NBA? 24. september 2004 00:01
Þær sögur ganga fjöllum hærra í Bandaríkjunum að þrír heimsþekktir körfuboltamenn muni leika í NBA-deildinni í vetur. Fyrst fréttist að Clyde Drexler, sem gerði garðinn frægan með Portland Trailblazers og Houston Rockets, hefði í hyggju að ganga til liðs við Denver Nuggets. Þá hefur Dennis Rodman, Ormurinn svokallaði, æft með liðinu upp á síðkastið. Þá er ekki öll sagan sögð því Michael Jordan æfði grimmt í sumar og sögur herma að hann sé á leið í Miami Heat. Pat Riley, forseti Heat, neitaði að þeir hefðu ræðst við. "Þetta er mjög dæmigert og gerist oft," sagði Riley. "Sagan byrjar sem lítil ályktun og vex svo ásmegin. Ef Jordan hringir munum við ræða við hann með virðingu." Er Jordan ekki velkominn? Sagan af endurkomu Jordans barst til leikmanna Miami Heat, sem voru missáttir við upplýsingarnar. Shaquille ONeal sagði félögum sínum að hann hefði ekki áhuga á að fá goðið í Heat. Að sögn Shaq skildi Jordan eftir fjölmörg skilaboð á símsvara miðherjans og var Shaq viss um að sá gamli ætlaði að snúa aftur. Sjálfur skilur Jordan ekkert í neinu. "Ég hef ekkert talað við Shaq. Það er engin endurkoma plönuð," sagði Jordan. Litríkur Rodman Hinn endalaust skrautlegi Rodman mætti nýlega á æfingu hjá Denver Nuggets. Kiki Vandeweghe, þjálfari Nuggets, sagðist alltaf tilbúinn að skoða menn á borð við Rodman. "Af hverju ekki? Menn eins og Rodman ná aldrei spilaþörfinni úr sér," sagði Vandeweghe. "Rodman var að vísu meiddur á æfingunni og gat lítið beitt sér vegna eymsla. Þetta kemur allt í ljós." Að sögn Darren Prince, umboðsmanns Rodman, er kallinn vel á sig kominn enda hætti hann að drekka fyrir ári síðan. "Það var erfiður tími en er sem betur fer liðinn," sagði Prince.
Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 3-0 Íslenski boltinn Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Sport Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Fullnaðarsigur Arnars Íslenski boltinn Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Enski boltinn Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Golf Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Körfubolti Eriksen búinn að finna sér nýtt félag Fótbolti Annað af fórnarlömbum Asencio fyrirgefur honum Fótbolti Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Enski boltinn Fleiri fréttir Dilja Ýr lagði Man United og Sædís Rún lagði upp Í beinni: Valur - FH | Stórleikur á Hlíðarenda Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Ólafur Ingi öruggur í starfi Martial á leið til Mexíkó Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 3-0 Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Fékk tveggja vikna bann og sekt fyrir að hrinda starfsmanni lyfjaeftirlits Dagleg mótmæli trufla Spánarhjólreiðarnar Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu „Menn þurfa að fara að átta sig á því“ Eriksen búinn að finna sér nýtt félag Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Fullnaðarsigur Arnars Annað af fórnarlömbum Asencio fyrirgefur honum Vann Ólympíusilfur en ætlar núna að keppa á Steraleikunum Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Fertugur Fabianski beðinn um að mæta aftur Púaður á Prinsavöllum en fær góðar móttökur í Mílanó Yankees heiðruðu Charlie Kirk Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Dagskráin í dag: Úrslitastund fyrir ÍA Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Sjá meira