Jón Arnór með gegn Dönum í dag 9. september 2004 00:01
Íslenska landsliðið í körfuknattleik er statt í Danmörku um þessar mundir en liðið mætir heimamönnum í undankeppni Evrópukeppninnar í dag. Liðið hefur æft grimmt síðan í vor og gert ágætis hluti í æfingaleikjum sumarsins. Sigurður Ingimundarson, þjálfari landsliðsins, sagðist þekkja andstæðinginn ágætlega. "Ég þekki Danina nokkuð vel. Þetta er gott lið sem er á svipuðum styrkleika og við en eru náttúrlega á heimavelli. Engu að síður ætlum við að leika okkar besta leik í sumar og vinna" sagði Sigurður. Sigurður tók við liðinu af Friðriki Inga Rúnarssyni og hefur náð ágætis árangri. "Ég hef ekki gert neinar dramatískar breytingar en leikstíllinn sem ég lagði upp með er grimmur varnarleikur og pressa um allan völl. Hraður leikur, líf og fjör á vellinum. Það hefur gengið vel. Það tekur tíma og átak að koma inn svona leikskipulagi í ungt lið og fá alla til að spila á sama hraðanum. Fyrir þennan leik höfum við spilað 10 leiki og æft síðan í lok apríl. Það kostar tíma og hörkuvinnu að kom liði áfram í svona riðlakeppni. Jón Arnór smellpassar inn Jón Arnór Stefánsson er okkar þekktasti leikmaður en dvöl hans hjá Dallas Mavericks í NBA-deildinni vakti mikla athygli hér heima þó henni sé nú lokið. Jón, sem leikur í Rússlandi, verður með í leiknum gegn Dönum. "Þetta er fyrsti alvöru leikurinn hjá honum en Jón er náttúrlega búinn að vera á fullu í sumardeild NBA og sínu nýja liði, Dynamo St. Petersburg. Hann hefur staðið sig feiknavel og veit nákvæmlega að hverju hann gengur hjá okkur. Þetta er leikstíll sem hann virkar best í og á eftir að smellpassa eins og hver annar leikmaður. Hann er náttúrlega mikill liðsspilari þannig að ég hef engar áhyggjur af honum," staðhæfði Sigurður. Bandaríkjamenn ennþá bestir Landsliðsþjálfarinn var spurður álits á bandaríska Draumaliðinu og þeirri hnignun sem hefði átt sér stað á körfuboltanum í Bandaríkjunum. "Það eru stórstígar framfarir í körfuboltanum um allan heim en við Evrópumennirnir erum nú ekkert að fara framúr Bandaríkjamönnum. En það var virkilegt skemmtilegt að fylgjast með liðum eins og Nýja-Sjálandi sem lék hörkuvel á Ólympíuleikunum. Þetta sýnir að körfuboltinn er fantagóður í öllum heimsálfum en Bandaríkjamenn eru samt enn þá fremstir þó að Argentínumenn hafi unnið. Gaman er að sjá að þjóðir eins og Kínverjar eru farnir að spila við bestu þjóðir heims og það segir okkur að framfarirnar eru miklar um allan heim. Kanarnir eiga sjálfsagt eftir að laga til í sínum herbúðum fyrir næstu keppni sem þeir taka þátt í," sagði Sigurður að lokum. Ísland mætir Danmörku kl. 17 í dag og hægt er að sjá leikinn í Ölveri í Glæsibæ á risatjaldi.
Íþróttir Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Leik lokið: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi England - Gana | Blandar Kane sér í baráttuna um Gullskóinn? Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Sjá meira