Olíuverð að sliga veiðar 28. ágúst 2004 00:01 "
Það er mjög á brattann að sækja hjá útgerðum sem eru á kolmunna og rækjuveiðum vegna lítilla verðmæta afurðanna og hækkaðs olíuverðs," segir Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna. Árni segir skip sem notuð eru á kolmunnaveiðum fara með óhemjumagn af olíu og því eigi útgerðirnar erfiðara með að ná verðmætum úr aflanum þegar olíuverð er í sögulegu hámarki eins og nú er. Þá sé mjög lélegt verð á rækju á heimsmarkaði og þegar bætist við að olíukostnaðurinn er orðinn svo stór hluti af heildarkostnaðinum er eins og útgerðir treysti sér ekki til að halda áfram veiðunum. Árni segir til að mynda að útgerðarfélagið Brim á Húsavík hafi gefist upp á rækjuveiðum á einu skipa sinna og því hafi verið breytt til að fara á bolfisksveiðar. Á vefsíðu Þormóðs ramma segir að yfirmönnum á rækjuskipunum Stálvík og Sólbergi hafi verið sagt upp störfum vegna ört minnkandi rækjuveiði og hás olíuverðs. Árni segir mikið keypt af rækju frá útlöndum, Rússarækju svokallaðri, og ætla megi að útgerðirnar telji það hagkvæmara en að sækja rækjuna sjálfir. Hagstæðara sé að kaupa rækjuna til vinnslu og pökkunar hér á landi. Hægt er að vera með tíu Rússa í vinnu á móti einum Íslendingi, því sé við ramman reip að draga. Árni segir að vonast sé til, og einhverjar vísbendingar séu þar um, að olíuverðið sé á niðurleið. Hins vegar sé spurning hversu neðarlega verðið verði að fara svo menn telji vera rekstrargrundvöll fyrir veiðarnar. Þá þyrfti rækjan einnig að hækka í verði.
Fréttir Innlent Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Innlent Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Innlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fleiri fréttir Gripinn með þýfi í fórum sínum og sparkað úr landi Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Sjá meira