Illkynja mein fjarlægt 3. ágúst 2004 00:01
Eins og fram hefur komið lagðist Davíð Oddsson forsætisráðherra inn á Landspítala-háskólasjúkrahús að morgni 21. júlí sl. vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn kom jafnframt í ljós staðbundið æxli í hægra nýra hans. Nýrað með æxlinu, sem reyndist illkynja, var fjarlægt með skurðaðgerð. Við rannsóknir samfara skurðaðgerðinni staðfestist að um algjörlega staðbundið mein var að ræða, sem auðvelt reyndist að fjarlægja. Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuenytinu segir að bati ráðherrans eftir þessa aðgerð hafi verið góður og eðlilegur og engin eftirköst komið í ljós eftir hana. Þar sem meinið í nýranu fannst strax við innlögn og var fjarlægt sama dag, voru frekari og ítarlegri rannsóknir framkvæmdar í framhaldi aðgerðarinnar og næstu daga á eftir. Þær rannsóknir voru mjög umfangsmiklar. Í þessum rannsóknum kom í ljós að í skjaldkirtli var illkynja mein. Í framhaldi af þeim niðurstöðum var ákveðið að fjarlægja skjaldkirtilinn og nærliggjandi eitla með skurðaðgerð. Þessi skurðaðgerð var framkvæmd í morgun á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og tókst vel. Forsætisráðherra heilsast vel eftir aðgerðina og batahorfur eru mjög góðar að sögn lækna. Í tilkynningu forsætisráðuneytisins segir að engin tengsl sé á milli þessara tveggja meina. Ráðherrann muni dvelja nokkra daga til viðbótar á sjúkrahúsinu til að jafna sig eftir aðgerðina og verða frá störfum nokkrar næstu vikur, þar til hann hefur náð fullum bata. Davíð Oddsson forsætisráðherra og fjölskylda hans vilja koma á framfæri einlægu þakklæti til lækna þeirra og hjúkrunarfólks og annars starfsliðs Landspítala-háskólasjúkrahúss sem annast hefur forsætisráðherra af mikilli þekkingu, fagmennsku og hlýju. Jafnframt vilja þau koma á framfæri kveðjum og þökkum til þess gríðarlega fjölda einstaklinga sem hefur sent forsætisráðherra og fjölskyldu hans fallegar kveðjur, góðar óskir og fyrirbænir. Þessar góðu kveðjur og sú mikla hlýja sem þær hafa fært með sér eru ráðherranum og fjölskyldu hans mikilvægur styrkur við þessar erfiðu aðstæður, segir í tilkynningu forsætisráðuenytisisns.
Fréttir Innlent Mest lesið Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Innlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Erlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Erlent Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Erlent Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Innlent Fleiri fréttir Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Sjá meira