Innlent

Rekaldið enn á sama stað

Rekald, sem sett var út til að kanna rek líksins af Sri Rahmawati, hefur ekkert hreyfst eftir að því var varpað fram af klettum í Hofsvík á Kjalarnesi fyrir tæpum sólarhring. Björgunarsveitarmenn unnu eftir nákvæmum leiðbeiningum sem Hákon Eydal hefur gefið lögreglunni um hvar og hvernig hann losaði sig við líkið af fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sri Rahmawati, þegar þeir endursköpuðu aðstæður á vettvangi í gær. Í sænskan póstpoka settu þeir leðurjakka og fleiri föt sem Hákon segir að Sri hafi verið í, ásamt grjóti og kúbeini, sem Hákon notaði þegar hann varð Sri að bana eftir átök á heimili hans í Stórholti sunnudaginn fjórða júlí. Það fór ekki á milli mála á vettvangi í gær að björgunarmenn voru hissa á því að sjór hafi ekki flætt að því svæði þar sem Hákon segist hafa varpað pokanum fram af klettum í Hofsvík. Aðgerðinni var frestað fyrir nokkrum dögum vegna veðurs, auk þess sem sjávarföll og aðrar aðstæður voru sagðar eins líkar og hægt væri í gær. Háfjara var um klukkan eitt í gær í Hofsvíkinni við Kjalarnes og var pokanum kastað út klukkan 14:20. Einum og hálfum tíma síðar flæddi yfir pokann. Í pokann var fest bauja svo hægt væri að fylgjast með reki hans frá björgunarskipinu Ásgrími S. Björnssyni. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu rétt fyrir hádegi hafði pokinn ekkert hreyfst en áætlað hafði verið að fylgjast með hugsanlegu reki hans í tólf tíma. Nú er liðinn tæpur sólarhringur frá því að aðgerðin hófst. Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að niðurstöður prófunarinnar verði teknar saman í dag og sendar lögreglunni. Hvort þær niðurstöður breyti einhverju um rannsóknina eða sýn manna á framburð Hákonar verður tíminn að leiða í ljós en ekki náðist stjórnendur lögreglurannsóknarinnar fyrir hádegi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×