Halli á ríkisendurskoðun 19. júlí 2004 00:01
Ríkisendurskoðun fór rúmlega fjörutíu milljónir króna fram úr fjárlögum í fyrra, á sama tíma og embættið gagnrýndi aðrar ríkisstofnanir fyrir agaleysi í fjármálum. Ríkisendurskoðandi segir ekki hægt að stemma uppgjör nákvæmlega upp á krónu sem úthlutað er á fjárlögum. Skeytin hafa flogið milli fjármálaráðherra og Ríkisendurskoðanda undanfarið, sem telur að framkvæmd fjárlaga hafi einkennst af agaleysi ár eftir ár, og vill að nú verði stigið á bremsuna. En ef litið er á ársreikninga ríkisendurskoðunar kemur í ljós að hún fékk tæpar 270 milljónir á fjárlögum fyrir árið 2003, sem urðu að rúmlega 284 með fjáraukalögum. Reikningurinn fyrir árið hljóðaði hinsvegar upp á rúmlega 327 milljónir, eða tæplega 43 milljónir í mínus. Þar með bætist stofnunin í hóp þeirra fjölmörgu sem fóru fram úr heimildum í fyrra, og Ríksendurskoðandi hefur gagnrýnt mjög. Sigurður Þórðarson, ríkisendurskoðandi bendir á að hann hafi átt 27 milljónir til góða frá árinu á undan. Hallinn er samt sem áður 15 milljónir. Skýringarnar sem eru gefnar eru helst þær að breytingar á húsnæði embættisins hafi kostað meira en áætlað var, mörg stór verkefni hafi verið unnin á árinu og því hafi þurft að kaupa sérfræðiþjónustu erlendis frá. Þetta sé í fyrsta skipti frá árinu 1987 sem embættið hafi farið fram úr fjárlögum. Sigurður segir að í skýrslum ríkisendurskoðanda sé ekki verið að gagnrýna að farið sé fram úr fjárheimildum heldur verði, þegar það gerist, að grípa til ráðstafana strax eins og ríkisendurskoðun hafi gert þegar í janúar. Gagnrýnin felist í því að viðvarandi sé, ár eftir ár, að halli sé hjá sömu stofnunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Fleiri fréttir Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Sjá meira