Einmanalegt og drungalegt á vetrum 18. júlí 2004 00:01 "
Fólk fer burt til þess að fara í framhaldsskóla og hefur kannski ekkert mikið að sækja til þess að fara til baka," segir Guðmundur Vignir Þórðarson. Guðmundur er tæplega þrítugur og flutti á höfuðborgarsvæðið frá Hólmavík fyrir rúmlega tíu árum þegar hann hóf framhaldsskólanám. Guðmundur starfar nú sem sölumaður í verslun. Foreldrar Guðmundar eru búsettir á Hólmavík og segist Guðmundur sækja bæinn heim mörgum sinnum á ári. Guðmundur telur þó ólíklegt að hann muni í framtíðinni flytja aftur til Hólmavíkur. "Það er fínt að vera þarna á sumrin en á veturna er voðalega einmanalegt og drungalegt," segir Guðmundur sem segir lítið félagslíf og lítið við að vera á Hólmavík. "Lífið í dag er þannig að það þarf alltaf einhverja skemmtidagskrá," segir Guðmundur. "Það er ekki hægt að finna sér sjálfur eitthvað við að vera." "Það horfir ágætlega við okkur fjölskylduna að vera hér úti á hjara," segir Þórður Sverrisson, faðir Guðmundar, sem rekur verktakafyrirtæki á Hólmavík. Að sögn Þórðar líta þau björtum augum á framtíðina og bendir á að ein dóttir þeirra hjóna sé flutt til baka frá Reykjavík með ung börn sín. Þórður segir þó að sé því miður ekki mjög algengt að ungt fólk sem alist hafi upp á Hólmavík flytji til baka eftir námslok. Hann segir meginástæðu þess vera skortur á atvinnu við hæfi. "Krakkarnir vilja koma heim en leggja oft ekki í það vegna þess að þau geta ekki fengið vinnu við það sem þau vilja starfa við."
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Sjá meira