Innlent

Enn leitað að kennitöluflassara

Persónuvernd hefur enn ekki tekist að varpa ljósi á það hver er að baki nafninu Guðmundur góði á spjallþræðinum malefnin.com. Guðmundur góði varð uppvís að því að birta á þræðinum nöfn, kennitölur og heimilisföng þriggja alnafna sem allir heita Guðmundur Jón Sigurðsson. Þetta gerði hann í því skyni að sýna fram á að lesendabréf í DV væri ekki ritað af Guðmundi Jóni Sigurðssyni heldur hefði blaðið logið upp höfundinum. Auk þess að birta kennitölurnar lýsti Guðmundur góði því á vefnum að hann hefði hringt í alnafnana þrjá sem þrættu fyrir bréfið. Einn þremenninganna, Guðmundur Jón Sigurðsson, hefur fúslega gengist við lesendabréfinu sem fjallaði um óhróður á spjallþræði málefna. Hann óskaði jafnframt eftir rannsókn Persónuverndar vegna kennitöluflassarans. Stefán Helgi Kristinsson hefur fengið erindi frá Persónuvernd varðandi málið. Hann sagði við DV á sínum tíma að hann myndi liðsinna yfirvöldum í hvívetna vegna leitarinnar að kennitöluflassaranum. Nú er hann varkárari í yfirlýsingum. "Ég er að svara bréfinu og mun ekki að ræða málið frekar að sinni," segir Stefán Helgi Kristinsson í gær. Hann vildi ekkert tjá sig um það hvort hann hefði hjálpað yfirvöldum við að rekja slóð flassarans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×