Uppsagnir hjá Eimskipum 13. október 2005 14:24
Uppsagnir eru fyrirhugaðar hjá Eimskipafélagi Íslands vegna skipulagsbreytinga sem verða kynntar samhliða hálfsársuppgjöri félagsins í lok mánaðarins. Baldur Guðnason, forstjóri félagsins, segir að með breytingunum sé verið að bregðast við breyttu starfsumhverfi. Síðustu þrjá mánuði hefur verið unnið að skipulagsbreytingum hjá Eimskipafélagi Íslands í kjölfar þeirrar ákvörðunar aðalfundar félagsins í mars sl. um að leggja mesta áherslu á flutningastarfsemina í framtíðinni. Í því sambandi var sjávarútvegsarmur félagsins seldur, þ.e. með sölunni á Brim, auk þess sem Eimskip hefur flutt alla fjárfestingastarfsemi út úr fyrirtækinu inn í Burðarás sem er móðurfélag Eimskipafélagsins. Ný stjórn setti fram markmið að auka arðsemi flutningastarfseminnar þar sem hún hefði ekki skilað tilætluðum árangri. Skipulagsbreytingar voru boðaðar hjá Eimskip í lok maí síðastliðins. Baldur Guðnason segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi verið að vinna að nýju skipulagi þess sem hafi það að markmiði að auka tekjur og draga úr kostnaði. Hann segir að breytingarnar verði kynntar samhliða hálfsársuppgjöri sem liggi fyrir í lok þessa mánaðar. Verið sé að taka á kostnaðarliðum félagsins með því að endurskoða alla þætti í rekstrinum og fara yfir það hvar hægt sé að gera betur. Um 1100 manns starfa hjá félaginu, eða um 800 hérlendis og um 300 erlendis. Baldur segir að verið sé að bregðast við breyttum ytri og innri aðstæðum í starfsumhverfinu. Hann vill ekki greina frá því á þessari stundu hvort þessar aðgerðir leiði til hópuppsagna en hann undirstrikar að þær muni ekki bitna á einni deild frekar en annarri. Forstjóri Eimskips segir alltaf sársaukafullt þegar grípa þurfi til breytinga á starfsmannahaldi en undirstrikar að ekki hafi verið hjá því komist að fara í þessa naflaskoðun.
Fréttir Innlent Mest lesið Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Erlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent Gular viðvaranir í dag en hiti að 27 stigum á morgun Veður Fleiri fréttir Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Snýr aftur sem bæjarstjóri eftir árslangt veikindaleyfi Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði