Innlent

Uppsagnir hjá Eimskipum

Uppsagnir eru fyrirhugaðar hjá Eimskipafélagi Íslands vegna skipulagsbreytinga sem verða kynntar samhliða hálfsársuppgjöri félagsins í lok mánaðarins. Baldur Guðnason, forstjóri félagsins, segir að með breytingunum sé verið að bregðast við breyttu starfsumhverfi. Síðustu þrjá mánuði hefur verið unnið að skipulagsbreytingum hjá Eimskipafélagi Íslands í kjölfar þeirrar ákvörðunar aðalfundar félagsins í mars sl. um að leggja mesta áherslu á flutningastarfsemina í framtíðinni. Í því sambandi var sjávarútvegsarmur félagsins seldur, þ.e. með sölunni á Brim, auk þess sem Eimskip hefur flutt alla fjárfestingastarfsemi út úr fyrirtækinu inn í Burðarás sem er móðurfélag Eimskipafélagsins. Ný stjórn setti fram markmið að auka arðsemi flutningastarfseminnar þar sem hún hefði ekki skilað tilætluðum árangri. Skipulagsbreytingar voru boðaðar hjá Eimskip í lok maí síðastliðins. Baldur Guðnason segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi verið að vinna að nýju skipulagi þess sem hafi það að markmiði að auka tekjur og draga úr kostnaði. Hann segir að breytingarnar verði kynntar samhliða hálfsársuppgjöri sem liggi fyrir í lok þessa mánaðar. Verið sé að taka á kostnaðarliðum félagsins með því að endurskoða alla þætti í rekstrinum og fara yfir það hvar hægt sé að gera betur. Um 1100 manns starfa hjá félaginu, eða um 800 hérlendis og um 300 erlendis. Baldur segir að verið sé að bregðast við breyttum ytri og innri aðstæðum í starfsumhverfinu. Hann vill ekki greina frá því á þessari stundu hvort þessar aðgerðir leiði til hópuppsagna en hann undirstrikar að þær muni ekki bitna á einni deild frekar en annarri. Forstjóri Eimskips segir alltaf sársaukafullt þegar grípa þurfi til breytinga á starfsmannahaldi en undirstrikar að ekki hafi verið hjá því komist að fara í þessa naflaskoðun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×