Innlent

Þrjú börn og níu karlmenn

Alls hafa hérlendis horfið 11 einstaklingar frá árinu 1991 til ársloka 2003, aðrir en þeir sem farist hafa við störf á sjó, samkvæmt gagnaskrá ríkislögreglustjóra um mannshvörf. Skráin byggir á upplýsingum frá lögreglustjóraembættunum, en þeim ber að tilkynna ríkislögreglustjóra um horfna menn innan þriggja mánaða frá því að mannshvarf er tilkynnt. Í samantekt embættisins kemur fram að allir hinna horfnu eru karlmenn eða drengir, en í hópnum eru þrjú börn og tveir erlendir ferðamenn. Talið er að átta af þeim sem saknað er hafi fallið í sjó, foss eða ár og einn hafi horfið í óbyggðum. Um tvo er ekki vitað annað en að þeir fóru frá heimilum sínum. "Það fer alltaf fram einhver rannsókn, en þegar talað er um sakamálarannsókn, þá hefur vaknað grunur um jafnvel refsivert athæfi," segir Gísli Pálsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Einungis er vitað til að eitt þessara mála hafi verið rannsakað sem sakamál, en það er hvarf Valgeirs Víðissonar. Til hans hefur ekkert spurst frá því 19. júní árið 1994, en þá átti hann tæpan mánuð í þrítugsafmælið. Í skriflegu svari dómsmálaráðherra á Alþingi í fyrra kom fram að frá árinu 1945 hafi horfið 47 einstaklingar, aðrir en þeir sem farist hafa við störf á sjó. Ár         Fjöldi horfinna 1991            1 1992            0 1993            2 1994            4 1995            0 1996            0 1997            0 1998            0 1999            0 2000            1 2001            0 2002            3 2003            0 Alls             11



Fleiri fréttir

Sjá meira


×