Innlent

Fólksfjölgun mest á Austurlandi

Fólksfjölgun var mest á Austurlandi á öðrum ársfjórðungi ársins. Í nýjum tölum Hagstofunnar um búferlaflutinga kemur fram að fólki fjölgaði um 512 einstaklinga á Austurlandi og voru það einkum flutningar frá útlöndum. Á landsvísu fluttu um 170 fleiri Íslendingar frá landinu og um 650 fleiri erlendir ríkisborgarar til landsins. Að þessu sinni komu langflestir erlendir ríkisborgarar frá Portúgal, rúmlega 400, og Ítalíu þaðan sem tæplega 90 komu. Meðfylgjandi mynd er frá Fjarðabyggð á Austurlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×