Innlent

Reynt var að þrífa blóð í íbúðinni

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var reynt að þrífa burt blóð í íbúð mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að eiga þátt í hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, áður en rannsókn lögreglu hófst. Niðurstöðu DNA-rannsóknar á blóði sem fannst í íbúð og jeppabifreið mannsins er enn beðið. "Við erum náttúrlega bara að vinna að okkar rannsókn," segir Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík. Hann vildi hvorki játa því né neita hvort sést hafi til mannsins við grunsamlega iðju á sunnudaginn fyrir rúmri viku, daginn áður en tilkynnt var um hvarf konunnar. Heimildir herma að þá hafi sést til mannsins við heimili hans í Stórholti þar sem hann burðaðist með eitthvað fyrirferðarmikið og innpakkað og kom fyrir í jeppabifreið sinni. Hilmar Baldursson, lögmaður mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segist ekki vera farinn að fá rannsóknargögn að ráði frá lögreglu. "Það fer nú samt sjálfsagt að styttast í það," sagði hann og gerði ráð fyrir því að fá einhver gögn um eða upp úr miðri viku þegar niðurstöður DNA-rannsóknar sem fram fór í Noregi lægju fyrir. Taldi hann að niðurstöðu yrði jafnvel að vænta í dag eða á morgun. Tilgangur DNA-rannsóknarinnar er að skera úr um hvort blóð sem fannst á rannsóknarvettvangi sé úr konunni sem saknað er. Sumir íbúar í næsta nágrenni við staðinn þar sem rannsókn lögreglu fer fram í Stórholti segja töluvert ónæði af nábýlinu við vettvanginn. Einn greindi til dæmis frá því að um síðustu helgi hafi safnast saman í garðinum við húsið drukknir unglingar og látið mynda hvert annað fyrir framan staðinn. Umræddur nágranni var orðinn nokkuð þreyttur á athyglinni sem beinist að íbúðargötu hans og velti fyrir sér hvort lögregla færi ekki að telja tímabært að taka niður gula borða og annað sem auðkenndi vettvang rannsóknarinnar. Þar fengust hins vegar þær upplýsingar að lögreglan yrði við rannsóknir í Stórholtinu í nokkra daga til viðbótar. Ekki fékkst staðfest hjá lögreglu að reynt hafi verið að þrífa burt blóð í íbúð eða bíl mannsins sem er í gæsluvarðhaldi, áður en rannsókn málsins hófst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×