Innlent

Kynna sér sjónarmið útvegsmanna

Sjávarútvegsráðherra þingar í dag með forsvarsmönnum Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna deilna íslenskra og norska stjórnvalda um fiskveiðiréttindi kringum Svalbarða. Tæp vika er síðan annar slíkur fundur átti sér stað vegna sama máls með þátttöku fleiri ráðuneyta en ekki fæst upplýst um hvað fundurinn er í þetta sinn. Aðstoðarmenn sjávarútvegsráðherra segja að um hefðbundinn fund sé að ræða til að kynnast sjónarmiðum LÍÚ í málinu. "Ég veit ekkert hvað þeir vilja en sjónarmið okkar hafa legið fyrir í mörg ár," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann hefur verið manna harðastur í gagnrýni á Norðmenn vegna þessa máls enda segir hann að um mikið hagsmunamál sé að ræða fyrir íslensku þjóðina. Hefur hann fyrir hönd síns félags ítrekað óskað eftir því að stjórnvöld stefni Norðmönnum fyrir alþjóðlega dómstóla þar sem Norðmenn hafi engan rétt til að takmarka veiðar við Svalbarða eins og þeir telja þó sjálfir. Telur Friðrik að slík lögsókn verði til þess að þeir bakki með kröfur sínar enda séu forsendurnar sem þeir gefa sér afar hæpnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×