Innlent

Stúlka rotaðist í fótbolta

Lögreglunni í Keflavík var tilkynnt um að ung stúlka lægi meðvitundarlaus á knattspyrnuvellinum í Grindavík í gær. Þegar lögregla og sjúkralið mættu á staðinn kom í ljós að stúlkan hafði fengið fótbolta í höfuðið og rotast. Stúlkan var með meðvitund þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn en var flutt til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fréttavefur Víkurfrétta greindi frá.  Meðfylgjandi mynd er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×