Innlent

Orkuveitan kaupir hverfla

Samningur um kaup á tveimur 40 megavatta hverflum og öðrum búnaði fyrir Hellisheiðarvirkjun var undirritaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur í morgun. Samningurinn er gerður við japanska fyrirtækið Mitsubishi og þýska fyrirtækið Balce Durr um tvær vélasamstæður sem eiga að hefja framleiðslu eftir tvö ár. Hellisheiðarvirkjun á að skila 120 megavöttum af rafmagni og 400 af varma en eftir fyrsta áfanga á virkjunin að skila 80 megavöttum af rafmagni til stækkunar Norðuráls á Grundartanga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×