Innlent

Blóðsýni tekin úr stigangi

Blóðsýni voru tekin úr stiga í sameign í húsinu í Stórholti þar sem lögregla hefur rannsakað hvarf indónesískar konu undanfarna daga. Ekki er útilokað að lýst verði eftir henni síðar í vikunni en þá er búist við niðurstöðum DNA-rannsókna frá Noregi. Fyrrverandi sambýlismaður konunar, sem grunaður er um aðild að hvarfi hennar, sást bera eitthvað vafið inn í plastpoka út í jeppa í hádeginu á sunnudaginn fyrir rúmri viku. Fram hefur komið að sýni voru tekin úr bílum fyrir utan húsið og innan úr íbúð á neðri hæð. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar voru sýni einnig tekin úr stiga í sameign hússins. Blóðsýnin voru send í DNA-rannsókn í Noregi og er niðurstöðu að vænta síðar í vikunni. Lögregla hefur lítið vilja segja um af hverju ekki hefur verið lýst eftir konunni, nema að hún sjá ekki ástæðu til þess að svo stöddu. Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, svarar því til, spurður hvort upplýsingar frá almenningi geti engu bætt við málið, að enginn hafi gefið sig fram við lögreglu eftir umfjöllun um málið í fjölmiðlum undanfarna daga en þess má geta að mynd af konunni hefur birst í DV. Sigurbjörn segir ekki útilokað að lýst verði eftir konunni þegar DNA-niðurstöður hafa borist til landsins. Rannsóknin beinist að því að eitthvað óeðlilegt hafi gerst en lögregla vill vera viss um að sýnin séu úr konunni. Samskipti fjölmiðla og lögreglu voru til umræðu við rannsókn líkfundarmálsins á Neskaupstað í vetur og rætt hefur verið um það innan lögreglunnar að halda blaðamannafund eftir að niðurstöður DNA rannsóknarinnar liggja fyrir. Sambýlismaður konunnar neitaði aðild að hvarfi hennar við yfirheyrslur sl. föstudag en hann var úrskurðarður í tveggja vikna gæsluvarðhald á miðvikudag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×