Innlent

Vísitala neysluverðs lækkaði

Vísitala neysluverðs lækkaði um tæplega hálft prósent frá því í júní. Helsta ástæða lækkunarinnnar er að sumarútsölur hófust fyrir skemmstu og hefur verð á fötum og skóm lækkað um 7,8%. Þá lækkaði verð á bensíni og olíu um 2,3%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,7%. Vísitala neysluverðs í júlí 2004, sem er 234,6 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2004.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×