Fötluð börn í áhættuhópi 5. júlí 2004 00:01
Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, telur fagnaðarefni ef farið verður ofan í saumana á málefnum heyrnarlausra barna. Félag heyrnarlausra hefur kallað eftir opinberri rannsókn á kynferðisbrotum gegn heyrnarlausum börnum þar sem rökstuddur grunur hafi komið fram um að stór hópur hafi verið misnotaður kynferðislega. Þá hafi norsk rannsókn leitt í ljós að fjórða hvert heyrnarlaust barn hafi mátt sæta kynferðisofbeldi. "Rannsóknir víða erlendis hafa sýnt að fötluð börn eru í sérstökum áhættuhópi þar sem þau eru almennt séð varnarlausari en önnur börn," segir Bragi Guðbrandsson. "Kynferðisbrotamenn eru fundvísir á fórnarlömb og velja þau oft á tíðum af mikilli kostgæfni, gjarnan með tilliti til þess að lágmarka hættuna á því að upp um þá komist. Þá verða fatlaðir einstaklingar oft fyrir valinu þar sem tjáning þeirra er hömluð með einum eða öðrum hætti." Bragi segir menn hafa verið meðvitaða um þessa hættu lengi. "Menn þurfa alltaf að vera vakandi fyrir því að beina sjónum sínum einkum að þessum börnum og hvað er hægt að gera til þess að tryggja öryggi þeirra." Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í vikunni heyrnarlausan mann fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætra sinna. Við ákvörðun dómsins var tekið tillit til kynferðislegrar misnotkunar sem dæmdi mátti sæta í æsku og hlaut hann því vægari dóm en ella. Þá tók dómurinn fram að svo virtist sem að nokkuð margir heyrnarlausir einstaklingar hefðu verið misnotaðir á því tímabili. Bragi segir málið mjög viðkvæmt, einkum í ljósi þess að samfélag heyrnarlausra á Íslandi telji ekki mjög marga einstaklinga. Því sé erfitt að halda leyndu hver í hlut eigi. "Engu að síður er eðlilegt að umfjöllun verði í samfélaginu í tengslum við þessi mál, sérstaklega um hvað við getum gert til þess að vernda þessi börn."
Fréttir Innlent Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira