Innlent

Þingmenn frá Brimum hér á landi

Sendinefnd frá fylkisþinginu í Brimum (Bremen) í Þýskalandi kemur í opinbera heimsókn hingað til lands í dag í boði Alþingis. Heimsóknin hefst á Akureyri þar sem fylkisþingmennirnir dvelja í tvo daga áður en þeir halda til Reykjavíkur. Þeir munu meðal annars kynna sér sjávarútvegs- og viðskiptamál. Þingmennirnir munu eiga fundi með forseta Alþingis, fulltrúum þingflokka og fulltrúum Þýsk-íslenska verslunarráðsins. Heimsókninni lýkur á miðvikudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×