Vill rannsókn á kynferðisbrotum 2. júlí 2004 00:01
Berglind Stefánsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, vill að fram fari opinber rannsókn á hversu stór hópur heyrnarlausra barna hafi verið misnotaður kynferðislega. Heyrnarlaus maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag dæmdur í tveggja ára fangelsi, þar af 21 mánuð skilorðsbundið til fimm ára, fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætra sinna. Dómararnir sögðust vilja "kasta bjarghring" til hans með því að ákvarða honum refsingu sem væri að stærstum hluta skilorðsbundin. Sérstakt tillit var tekið til erfiðra aðstæðna hins dæmda en hann segist hafa mátt sæta daglegri kynferðislegri misnotkun frá níu til sautján ára aldurs er hann bjó á heimavist Vesturhlíðarskóla. Einnig segir í dómnum að svo virðist vera sem nokkuð margir heyrnarlausir einstaklingar sem sóttu skólann hafi orðið fyrir kynferðislegri misnotkun. Berglind segir rökstuddan grun um kynferðisbrot gegn heyrnarlausum börnum hér á landi. "Þetta er stór hópur sem um er að ræða en ég hef þó engar tölur" segir Berglind. Engin rannsókn hefur farið fram hérlendis á málinu en rannsóknir í Noregi hafi sýnt að fjórða hvert heyrnarlaust barn hafi verið misnotað. Berglind telur því nauðsynlegt að rannsókn fari fram. "Það eru margir sem búa yfir þessari reynslu og því mjög mikilvægt að málið verði skoðað."
Fréttir Innlent Mest lesið Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Svandís stígur til hliðar Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira