Innlent

Ónóg virðing fyrir öldruðum

Ónóg virðing fyrir einkamálum aldraðra á fimm öldrunarstofnunum, og skortur á sjálfræði er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri könnun sem birt hefur verið. Æskilegt er að fólkið taki virkari þátt í sínu daglega umhverfi. Atriðin sem Vilhjálmur nefnir sem dæmi eru annars vegar svör við spurningum um hvort starfsfólk bankaði þegar það kæmi inn til fólksins. Innan við 50% svöruðu, að allir starfsmenn gerðu það. Einnig var spurt hvort starfsfólk spyrði um leyfi áður en það opnaði hirslur viðkomandi. 55% svöruðu, að allir gerðu það. 9% sögðu að enginn gerði það. Þá kemur fram, að fólk ræður því yfirleitt ekki hvenær það fer í bað, eða 63% og um 11% svarenda ráða því ekki hverju þeir klæðast. Taka ber fram að 22% svarenda þurfa aðstoð við að klæða sig . Vilhjálmur sagði að spurt hefði verið um frumatriði daglegs lífs. Auk tilhögunar þess hefði fólkið verið spurt hvort það vildi ráða meiru um tiltekin atriði. "Það er ekki ljóst að fólkið kjósi endilega að ráða meiru um þessi atriði heldur en það gerir, miðað við hvernig það svarar," sagði hann. "Hins vegar kemur það nokkuð á óvart að ekki skuli tekið meira tillit til óska þess og venja en virðist vera gert, en líka hitt að fólkið sjálft hafi ekki meiri áhuga á að ráða meiru um umhverfi sitt heldur en raun ber vitni. Meðan fólk er heima hjá sér, vill það eðlilega ákveða sjálft, en svo virðist snúið við blaðinu þegar það er komið inn á stofnun, þó að hún sé heimili þess. Þetta viðhorf hefur verið kallað "hlédrægniskenningin" eða hugmyndin um "áhyggjulaust ævikvöld". Þá virðist sem fólk sé komið til þess að láta sjá um sig. Þetta viðhorf sem finna má bæði hjá vistmönnum og starfsfólki er eflaust ein meginskýringin á þeim niðurstöðum sem við fengum. En það getur verið bjarnargreiði við fólk að ganga undir því. Rannsóknir benda til þess að þessi hlédrægniskenning og umsjárhugmynd flýti fyrir hrörnun. Fólki líður betur ef það er virkara og meiri þátttakendur í sínu umhverfi. Hluti af því að virða fólk er að virða venjur þess. Sé litið til hluta eins og klæðnaðar, mataræðis og fleira af því tagi, þá er það spurning um virðingu að koma til móts við venjur fólks á þessum aldri." "Það má augljóslega segja, að um sé að ræða ónóga virðingu fyrir einkamálum aldraðra, hvað þessa þætti snertir," sagði Viðhjálmur Árnason, prófessor í heimspekideild Háskóla Íslands, um atriði sem koma fram í könnun, sem hann og Ástríður Stefánsdóttir, læknir og dósent, gerðu á sjálfræði aldraðra á fimm öldrunarstofnunum. Niðurstöðurnar hafa þau gefið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×