Ónóg virðing fyrir öldruðum 30. júní 2004 00:01
Ónóg virðing fyrir einkamálum aldraðra á fimm öldrunarstofnunum, og skortur á sjálfræði er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri könnun sem birt hefur verið. Æskilegt er að fólkið taki virkari þátt í sínu daglega umhverfi. Atriðin sem Vilhjálmur nefnir sem dæmi eru annars vegar svör við spurningum um hvort starfsfólk bankaði þegar það kæmi inn til fólksins. Innan við 50% svöruðu, að allir starfsmenn gerðu það. Einnig var spurt hvort starfsfólk spyrði um leyfi áður en það opnaði hirslur viðkomandi. 55% svöruðu, að allir gerðu það. 9% sögðu að enginn gerði það. Þá kemur fram, að fólk ræður því yfirleitt ekki hvenær það fer í bað, eða 63% og um 11% svarenda ráða því ekki hverju þeir klæðast. Taka ber fram að 22% svarenda þurfa aðstoð við að klæða sig . Vilhjálmur sagði að spurt hefði verið um frumatriði daglegs lífs. Auk tilhögunar þess hefði fólkið verið spurt hvort það vildi ráða meiru um tiltekin atriði. "Það er ekki ljóst að fólkið kjósi endilega að ráða meiru um þessi atriði heldur en það gerir, miðað við hvernig það svarar," sagði hann. "Hins vegar kemur það nokkuð á óvart að ekki skuli tekið meira tillit til óska þess og venja en virðist vera gert, en líka hitt að fólkið sjálft hafi ekki meiri áhuga á að ráða meiru um umhverfi sitt heldur en raun ber vitni. Meðan fólk er heima hjá sér, vill það eðlilega ákveða sjálft, en svo virðist snúið við blaðinu þegar það er komið inn á stofnun, þó að hún sé heimili þess. Þetta viðhorf hefur verið kallað "hlédrægniskenningin" eða hugmyndin um "áhyggjulaust ævikvöld". Þá virðist sem fólk sé komið til þess að láta sjá um sig. Þetta viðhorf sem finna má bæði hjá vistmönnum og starfsfólki er eflaust ein meginskýringin á þeim niðurstöðum sem við fengum. En það getur verið bjarnargreiði við fólk að ganga undir því. Rannsóknir benda til þess að þessi hlédrægniskenning og umsjárhugmynd flýti fyrir hrörnun. Fólki líður betur ef það er virkara og meiri þátttakendur í sínu umhverfi. Hluti af því að virða fólk er að virða venjur þess. Sé litið til hluta eins og klæðnaðar, mataræðis og fleira af því tagi, þá er það spurning um virðingu að koma til móts við venjur fólks á þessum aldri." "Það má augljóslega segja, að um sé að ræða ónóga virðingu fyrir einkamálum aldraðra, hvað þessa þætti snertir," sagði Viðhjálmur Árnason, prófessor í heimspekideild Háskóla Íslands, um atriði sem koma fram í könnun, sem hann og Ástríður Stefánsdóttir, læknir og dósent, gerðu á sjálfræði aldraðra á fimm öldrunarstofnunum. Niðurstöðurnar hafa þau gefið
Fréttir Innlent Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira