Sport

Shaq selur húsið sitt

Það vakti mikla athygli á dögunum þegar Shaquille O´Neal gaf það út að hann vildi fara frá LA Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en hann bað þá um að vera skipt til annars liðs. Í fyrstu tóku fjölmiðlamenn ytra þessari yfirlýsingu mátulega alvarlega en nú bendir flest til að stóra manninum sé fullkomlega alvara og þessi yfirlýsing hafi ekki verið dæmigert svar frá tapsárum manni að sætta sig við óvænt tap inn á körfuboltavellinum. Nýjustu vísbendingarnar um að þessum frábæra miðherja sé alvara er að hann er nú búinn að setja húsið sitt í Beverly Hills á sölu og getur hver sem vill keypt það fyrir litlar 7,5 milljónir dollara eða um 542 milljónir íslenskra króna. Shaq hefur búið í þessari glæsivillu síðan 1997 en hún hafði verið byggð fjórum árum fyrr. Inn í því er kvikmyndahús, tölvuleikjasalur, upptökuhljóðver, lyfta, líkamsræktarstöð og að sjálfsögðu frábært útsýni yfir LA eða allt til alls fyrir stórstjörnu á borð við O'Neal enda er húsið upp á 12.500 fermetra. Það gæti kannski pirrað nýjan kaupanda að tennisvellinum hefur verið breytt í bílastæði fyrir nokkra af fjölmörgum sportbílum Shaq sem og að O'Neal hefur málað Súperman-merkið á nokkra staði í húsinu en Shaq var líkt við þessa ofurhetju á árum áður. Þetta sýnir og sannar að Shaq vill burtu frá Los Angeles þar sem hann hefur leikið síðustu átta ár og unnið þrjá meistaratitla með liðinu. Lakers-menn hafa fengið fjölda tilboða í O´Neal enda eru mörg NBA-lið spennt fyrir því að bæta þessum 216 cm og 154 kg miðherja inn í sitt lið. Framkvæmdastjórinn hjá Lakers, Mitch Kupchak, lifir víst enn í voninni með að Shaq snúist hugur en eftir því sem dagarnir líða verða minni og minni líkur á því. Umboðsmenn O´Neal hafa þegar sest niður með Kupchak og lagt fram lista með kröfum Shaq en þar sem launaumslagið hans er víst í sama stærðarflokki og hann sjálfur er ekkert auðvelt fyrir hin liðin í deildinni að taka undir sitt launaþak.. "Ég var ekkert að grínast á dögunum," sagði Shaq við blaðamenn þegar þeir náðu í skottið á honum á fundi félags leikmanna í NBA-deildinni en þar hefur Shaq tekið að sér forustuhlutverk. Hann varð varaforseti í vor og þykir líklegur sem framtíðarformaður félagsins en núverandi samningur við leikmenn rennur út eftir næsta tímabil og þykja ýmis vera teikn á lofti með að annað verkfall gæti skollið á deildina í kjölfar þess. Það er samt ljóst á öllu að þessi 32 ára leikmaður er ekki lengur sá yfirburðamaður sem hann var en engu að síður ætti hann að geta breytt mörgu hjá því liði sem verður svo heppið að hreppa hann. Shaq sjálfur hefur ekki gefið neitt úr um hvert hann vilji fara bara að hann vill burt úr Hollywood.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×