Shaq selur húsið sitt 29. júní 2004 00:01
Það vakti mikla athygli á dögunum þegar Shaquille O´Neal gaf það út að hann vildi fara frá LA Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en hann bað þá um að vera skipt til annars liðs. Í fyrstu tóku fjölmiðlamenn ytra þessari yfirlýsingu mátulega alvarlega en nú bendir flest til að stóra manninum sé fullkomlega alvara og þessi yfirlýsing hafi ekki verið dæmigert svar frá tapsárum manni að sætta sig við óvænt tap inn á körfuboltavellinum. Nýjustu vísbendingarnar um að þessum frábæra miðherja sé alvara er að hann er nú búinn að setja húsið sitt í Beverly Hills á sölu og getur hver sem vill keypt það fyrir litlar 7,5 milljónir dollara eða um 542 milljónir íslenskra króna. Shaq hefur búið í þessari glæsivillu síðan 1997 en hún hafði verið byggð fjórum árum fyrr. Inn í því er kvikmyndahús, tölvuleikjasalur, upptökuhljóðver, lyfta, líkamsræktarstöð og að sjálfsögðu frábært útsýni yfir LA eða allt til alls fyrir stórstjörnu á borð við O'Neal enda er húsið upp á 12.500 fermetra. Það gæti kannski pirrað nýjan kaupanda að tennisvellinum hefur verið breytt í bílastæði fyrir nokkra af fjölmörgum sportbílum Shaq sem og að O'Neal hefur málað Súperman-merkið á nokkra staði í húsinu en Shaq var líkt við þessa ofurhetju á árum áður. Þetta sýnir og sannar að Shaq vill burtu frá Los Angeles þar sem hann hefur leikið síðustu átta ár og unnið þrjá meistaratitla með liðinu. Lakers-menn hafa fengið fjölda tilboða í O´Neal enda eru mörg NBA-lið spennt fyrir því að bæta þessum 216 cm og 154 kg miðherja inn í sitt lið. Framkvæmdastjórinn hjá Lakers, Mitch Kupchak, lifir víst enn í voninni með að Shaq snúist hugur en eftir því sem dagarnir líða verða minni og minni líkur á því. Umboðsmenn O´Neal hafa þegar sest niður með Kupchak og lagt fram lista með kröfum Shaq en þar sem launaumslagið hans er víst í sama stærðarflokki og hann sjálfur er ekkert auðvelt fyrir hin liðin í deildinni að taka undir sitt launaþak.. "Ég var ekkert að grínast á dögunum," sagði Shaq við blaðamenn þegar þeir náðu í skottið á honum á fundi félags leikmanna í NBA-deildinni en þar hefur Shaq tekið að sér forustuhlutverk. Hann varð varaforseti í vor og þykir líklegur sem framtíðarformaður félagsins en núverandi samningur við leikmenn rennur út eftir næsta tímabil og þykja ýmis vera teikn á lofti með að annað verkfall gæti skollið á deildina í kjölfar þess. Það er samt ljóst á öllu að þessi 32 ára leikmaður er ekki lengur sá yfirburðamaður sem hann var en engu að síður ætti hann að geta breytt mörgu hjá því liði sem verður svo heppið að hreppa hann. Shaq sjálfur hefur ekki gefið neitt úr um hvert hann vilji fara bara að hann vill burt úr Hollywood.
Íþróttir Mest lesið Segja Sölva hæðast að Bröndby Fótbolti Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fótbolti Fékk flugeld í punginn í leik Fótbolti Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Enski boltinn Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Enski boltinn Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Íslenski boltinn Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Hafþór Júlíus í öðru sæti eftir fyrri daginn Sport Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Fótbolti Fá íþróttahæfileikana sína frekar frá móður sinni Sport Fleiri fréttir Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Diljá með stoðsendingu í fyrsta byrjunarliðsleiknum Eir Chang sjöunda á EM Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Daníel Tristan lagði upp mark en það var ekki nóg gegn toppliðinu Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Hafþór Júlíus í öðru sæti eftir fyrri daginn Eir komin í úrslitahlaupið á EM Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Bæði lið stóðu saman í hring þar til leiknum var aflýst Meiðsli Rodri verri en menn héldu Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Segja Sölva hæðast að Bröndby Fá íþróttahæfileikana sína frekar frá móður sinni Fékk flugeld í punginn í leik Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Tom Brady steyptur í brons Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, enskur fótbolti og fleira Fyrsti kvendómarinn í bandaríska hafnaboltanum Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti