Deila við Norðmenn í uppsiglingu 29. júní 2004 00:01
Enn ein fiskveiðideilan við Norðmenn er í uppsiglingu. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að erlend skip megi að hámarki veiða 80.000 tonn af síld á Svalbarðasvæðinu til 15. október. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir ekki koma til greina að hlíta þessu. Deilan sem upp er komin snýst um heimildir þjóða til síldveiða á Svalbarðasvæðinu. Norsk stjórnvöld gáfu í síðustu viku út einhliða tilskipun um 80.000 tonna hámarkskvóta á síld til handa erlendum fiskiskipum á Svalbarða fram til 15. október. Poul Oma hjá norsku fiskistofnuninni lét hafa eftir sér í viðtali við norska blaðið Fiskaren að verði tilskipunin höfð að engu muni brotleg skip færð til hafnar í Noregi, eins og hverjir aðrir landhelgisbrjótar, með tilheyrandi sektum og upptöku afla og veiðarfæra. Samkvæmt Svalbarðasáttmálanum svokallaða eiga allar aðildarþjóðir sáttmálans jafnan rétt til veiða á svæðinu og því ekki allir á eitt sáttir um ákvörðum norskra stjórnvalda. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir Norðmenn hafa tekið sér rétt við Svalbarða sem byggist ekki á sáttmálanum heldur á norskum lögum um efnahagslögsögu. Hann telur réttast að látið verði reyna á málið fyrir alþjóðlegum dómsstólum því Norðmenn hafi verið að koma í veg fyrir lögmætar veiðar Íslendinga á svæðinu. Friðrik segir mjög mikilvægt að stjórnvöld hérlendis láti reyna á þetta sem fyrst. Friðrik finnst blasa við að Íslendingar verði að fara inn á Svalbarðasvæðið, ef viðmiðunum um 80.000 tonn af síld verði náð, „vegna þess að við getum ekki látið Norðmenn fara svona með okkur,“ segir Friðrik.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira